Nýjustu greinar:
-
Klukkurunnar
Klukkurunnar (Weigela) er ættkvísl smávaxinna runna sem allir eiga
heimkynni sín í Austur-Asíu. Þeir bera nokkuð stór, klukkulaga blóm í
bleikum, hvítum, rauðum eða gulum lit og virðast alltof skrautlegir til
að eiga möguleika á að þrífast hér. Nú veit ég ekki hversu margar
tegundir klukkurunna hafa verið reyndar hér en tvær þeirra hafa reynst
ævintýralega vel.lesa meira ......
Posted Jul 11, 2011, 1:26 PM by Rannveig Garðaflóra
-
Leitin að réttu plöntunni
Það er fátt skemmtilegra en að standa frammi fyrir því spennandi
verkefni að hanna nýjan garð. Eða endurhanna gamlan garð sem er e.t.v.
kominn í órækt. Þá er að mörgu að hyggja. Fyrst er rétt að huga að
notagildi garðsins; hvernig hann muni veita eigendunum sem mesta ánægju.
Skipuleggja dvalarsvæði og göngustíga, aðkomur og önnur „hörð svæði“.
Svo er komið að þessu skemmtilega – að velja plönturnar.lesa meira .....
Posted Jul 5, 2011, 4:11 PM by Rannveig Garðaflóra
-
Krydd og matjurtir í pottum og kerjum
Það eru ekki allir sem hafa pláss eða aðstöðu fyrir stóran matjurtagarð
sem getur séð fjölskyldunni fyrir grænmeti og kartöflum frameftir vetri.
Það er þó ekki þar með sagt að ekki sé hægt að njóta þess að gæða sér á
heimaræktuðu grænmeti, þó í litlu magni sé. Það er nefnilega vel hægt
að rækta matjurtir í pottum og kerjum á svölunum eða pallinum.lesa meira ....
Posted Jun 10, 2011, 1:59 PM by Rannveig Garðaflóra
|
Plöntuskipti
-
Vortiltektin í garðinum hafin
Það er kominn tími til að grisja aðeins þær plöntur sem eru orðnar of plássfrekar.Hver planta kosta 300 kr.; 4 plöntur á 1000 kr.Sjá listann hér: Plöntur til ...
Posted May 13, 2011, 8:14 AM by Rannveig Garðaflóra
-
Fjölært fræ til sölu
Ég ætlaði að vera rosa dugleg í haust og safna fræi til að senda inn til
Garðyrkjufélagsins. Ég safnaði fræinu, en fann aldrei tíma til að
hreinsa það og pakka ...
Posted Apr 29, 2011, 1:06 PM by Rannveig Garðaflóra
|
-
Mynd dagsins:
-
20. júlí 2012
Dásamelga falleg mynd frá Möggu af Silkibóndarós 'Bowl of Beauty'.
Posted Jul 20, 2012, 10:32 AM by Rannveig Garðaflóra
-
13. júlí 2012
Falleg mynd af Dornrós frá Möggu. Hvet alla sem eiga myndavél og garð til að fara út í garð, taka mynd(ir) og senda í gagnagrunninn okkar. Hann byggir sig ekki sjálfur. :) Dornrósin ('Dornröschen') er ein af duglegustu eðalrósunum hér á landi. Hún er tilheyrir flokki nútímarunnarósa, en blómgerðin líkist terósarblendingi. Fái hún sæmilega gott skjól og sólríkan vaxtarstað er nokkuð öruggt að hún blómstri vel.
Posted Jul 13, 2012, 3:35 AM by Rannveig Garðaflóra
-
8. júlí 2012
Skógarvatnsberi 'Green Apples'.
Posted Jul 8, 2012, 7:13 AM by Rannveig Garðaflóra
|