Rannveig

fullDatetime-to-read.short-label

Haustlaukar - Inngangur

Fyrirheit um litríkt vor

Vorblómstrandi laukar eru með fyrstu blómunum sem birtast þegar snjóa leysir á vorin. Að gróðursetja haustlauka er því ávísun á litríkt vor.

Hvað eru haustlaukar?

Haustlaukar eru samheiti yfir ýmsar gerðir af plöntum sem safna forða í lauka, hnýði eða jarðstöngla sem eru gróðursett á haustin. Ástæðan fyrir haustgróðursetningu er sú að þessar tegundir þurfa kuldatímabil til að blómstra. Lengd kuldatímabilsins þarf að vera um 3 mánuðir, en hitastigið þarf ekki endilega að fara niður fyrir frostmark. Því má gróðursetja haustlauka frameftir hausti á meðan jörð er ófrosin, og jafnvel lengur ef þeir eru gróðursettir í potta.

Flestar tegundir haustlauka blómstra á vorin, en þó eru nokkrar undantekningar þar á. Dæmi um haustblómstrandi tegundir sem geta blómstrað hér, a.m.k. sunnanlands, eru haustliljur (Colchicum) og haustblómstrandi krókusar (Crocus).

Ræktunarskilyrði

Allar tegundir haustlauka eiga það sameiginlegt að þrífast best í vel framræstum jarðvegi á sólríkum stað. Krókusar þurfa t.d. sól til að blómin springi út. Sumar tegundir, t.d. vetrargosar, stjörnuliljur og stórblóma páskaliljur þola skugga part úr degi.

Gróðursetningardýpt fer eftir laukastærð. Miðað er við að dýptin samsvari að hámarki þrefaldri hæð lauksins.

Smálauka s.s. krókusa og snæstjörnur má gróðursetja í grasflatir, en þá þarf að bíða með fyrsta slátt þar til lauf laukkana hefur visnað.

Allar tegundir má líka rækta í pottum.

    80
    0