Adiantum pedatum 'Imbricatum'
Gyðjuhár
Vængburknaætt
Pteridaceae
Hæð
lágvaxið, um 20 - 30 cm
Lauflitur
ljósgrænn
Birtuskilyrði
hálfskuggi - skuggi
Jarðvegur
vel framræstur, frjór, lífefnaríkur, rakur
pH
súrt - hlutlaust - basískt
Harðgerði
frekar viðkvæmt, þarf mjög skjólgóðan stað
Heimkynni
garðaafbrigði, tegundin vex villt í N-Ameríku.
Venusarhár, Adiantum, er nokkuð stór ættkvísl um 250 tegunda í vængburknaætt, Pteridaceae. Þetta eru mjög fíngerðir burknar, oft með svarta stöngla og þunnt, ljósgrænt lauf sem vaxa gjarnan í lífefnaríkum, rökum jarðvegi, oft í klettasprungum þar sem vatn seitlar niður. Ein tegund, venusarhár (A. raddianum) er vinsæl pottaplanta. Flestar tegundir vaxa í Andesfjöllum og A-Asíu.
Mjög fíngerður burkni sem minnir mjög í útliti á venusarhár. Frekar viðkvæmur og þarf mjög skjólgóðan stað í lífefnaríkum, vel framræstum, rökum jarðvegi.