top of page

Acaena saccaticupula 'Blue Haze'

Glitlauf

Rósaætt

Rosaceae

Hæð

jarðlægt, 5 - 10 cm

Blómlitur

hvítur

Blómgun

júlí

Lauflitur

blágrænt

Birtuskilyrði

sól - hálfskuggi

Jarðvegur

vel framræstur, sendinn eða blandaður vikri eða möl

pH

súrt - hlutlaust - basískt

Harðgerði

sæmilega harðgert

Heimkynni

Nýja-Sjáland

Ættkvíslin Acaena, rósalauf, tilheyrir rósaætt, Rosaceae. Útbreiðslusvæði ættkvíslarinnar er að mestu bundið við suðurhvel jarðar, Nýja-Sjáland, Ástralíu og Suður-Ameríku. Þetta eru jarðlægar jurtir eða  hálfrunnar með smágerðu laufi sem minnir á rósalauf og er nafn ættkvíslarinnar dregið af því. Þetta eru fallegar þekjuplöntur með litfögru laufi í ýmsum litbrigðum s.s. blágráu eða bronslitu.

Fjölgun:


Skipting að vori


Sáning - þarf kaldörvun, best sáð að hausti.

Fræ rétt hulið og haft í 2-4 vikur við stofuhita og svo er best að setja sáninguna út fram að spírun. Spírun getur verið hæg, fræ gæti spírað ári síðar og því mikilvægt að henda ekki sáningunni of snemma.

Jarðlægur hálfrunni sem myndar breiðu af blágrænu, smágerðu laufi, sem minnir á rósalauf. Það þrífst best í sól, en þolir skugga part úr degi. Það þarf vel framræstan jarðveg, helst blandaðan vikri eða fínni möl, því það þolir illa blautan jarðveg, sérstaklega að vetri til. Falleg þekjuplanta fyrir frekar sólríka staði.

Áttu mynd eða hefurðu reynslu af þessari plöntu?

Þú getur deilt myndum og reynslusögum hér.

bottom of page