top of page

Adenophora bulleyana

Skúfbura

Bláklukkuætt

Campanulaceae

Hæð

hávaxin, um 100 cm

Blómlitur

fjólublár

Blómgun

ágúst

Lauflitur

grænn

Birtuskilyrði

sól - hálfskuggi

Jarðvegur

vel framræstur, frekar rakur

pH

súrt - hlutlaust - basískt

Harðgerði

lítil reynsla

Heimkynni

V-Kína

Kirtilklukkur, Adenophora, eru af bláklukkuætt , Campanulaceae og líkjast blómin mjög bláklukkum. Langflestar tegundir ættkvíslarinnar eiga heimkynni í Asíu en ein tegund vex villt í Evrópu.

Fjölgun:


Skipting að vori


Sáning - sáð að vori

Fræ rétt hulið og haft við stofuhita (ca. 20°C) fram að spírun. Eftir spírun þarf lægra hitastig og næga birtu til að plöntur verði ekki of teygðar.

Hávaxin planta sem ber fjólublá blóm sem líkja mjög bláklukkublómum. Hún þrífst best í lífefnaríkum jarðvegi, sem er vel framræstur, en þó rakur. Lítil reynsla hér af reynslu þessarar plöntu.

Áttu mynd eða hefurðu reynslu af þessari plöntu?

Þú getur deilt myndum og reynslusögum hér.

bottom of page