top of page

Alchemilla faeroensis

Maríuvöttur

Rósaætt

Rosaceae

Hæð

lágvaxinn, um 15-20 cm

Blómlitur

ljós grænn

Blómgun

júní

Lauflitur

grænn

Birtuskilyrði

sól - hálfskuggi

Jarðvegur

vel framræstur

pH

súrt - hlutlaust - basískt

Harðgerði

harðgerður

Heimkynni

Ísland, Færeyjar og Skandinavía

Döggblöðkur, Alchemilla, er ættkvísl jurta í rósaætt, Rosaceae. Þær eru blaðfagrar og þó blómin láti lítið yfir sér eru ljósgrænir sveipirnir mikið skraut sem fer afar vel með öðrum plöntum. Langflestar tegundir ættkvíslarinnar eiga heimkynni í norðanverðri Evrasíu, en einnig eru nokkrar tegundir sem eiga heimkynni í fjöllum Afríku og í Norður-Ameríku. Þrjár tegundir vaxa villtar á Íslandi.

Fjölgun:


Skipting að vori


Sáning - þarf kaldörvun, best sáð að hausti.

Fræ rétt hulið og haft í 2-4 vikur við stofuhita og svo er best að setja sáninguna út fram að spírun. Spírun getur verið hæg, fræ gæti spírað ári síðar og því mikilvægt að henda ekki sáningunni of snemma. Spírar best við 5-12°C

Maríuvöttur er lágvaxin, íslensk planta sem hentar vel í steinhæðir eða fremst í fjölæringabeð með öðrum smávöxnum plöntum. Hann er útbreiddur á Austurlandi, en sjaldséður í öðrum landshlutum. Laufblöðin eru millistig á milli laufs ljónslappa og maríustakks, hálfmött. Harðgerður og auðræktaður í vel framræstum jarðvegi og sól part úr degi.

Áttu mynd eða hefurðu reynslu af þessari plöntu?

Þú getur deilt myndum og reynslusögum hér.

bottom of page