top of page

Androsace lactea

Snæberglykill

Maríulykilsætt

Primulaceae

Hæð

lágvaxinn, um 10-15 cm

Blómlitur

hvítur

Blómgun

maí-júní

Lauflitur

grænn

Birtuskilyrði

sól

Jarðvegur

sendinn, vel framræstur jarðvegur

pH

hlutlaust - basískt

Harðgerði

þrífst vel í vel framræstum jarðvegi

Heimkynni

Alpafjöll og Karpatafjöll

Berglyklar, Androsace, tilheyra maríulykilsætt, Primulaceae. Í ættkvíslinni eru um 100 tegundir sem allar eru háfjallaplöntur sem þrífast best í grýttum jarðvegi á sólríkum stað.

Fjölgun:


Sáning - þarf kaldörvun, best sáð að hausti.

Fræ rétt hulið og haft í 2-4 vikur við stofuhita og svo er best að setja sáninguna út fram að spírun. Spírun getur verið hæg, fræ gæti spírað ári síðar og því mikilvægt að henda ekki sáningunni of snemma. Spírar best við 5-12°C.

Vorblómstrandi háfjallaplanta sem blómstrar hvítum blómum í maí - júní. Hann þarf sólríkan stað og vel framræstan jarðveg. Hann verður fallegastur í kalkríkum, grýttum jarðvegi.

Áttu mynd eða hefurðu reynslu af þessari plöntu?

Þú getur deilt myndum og reynslusögum hér.

bottom of page