top of page

Anemone multifida 'Major'

Mjólkursnotra

Sóleyjaætt

Ranunculaceae

Hæð

lágvaxin, um 30 cm

Blómlitur

kremhvítur með fjólubláum blæ

Blómgun

júní-júlí

Lauflitur

dökkgrænn

Birtuskilyrði

sól-hálfskuggi

Jarðvegur

næringarrík, vel framræst

pH

súrt - hlutlaust - basískt

Harðgerði

harðgerð

Heimkynni

N-Ameríka

Snotrur, Anemone, tilheyra sóleyjaætt, Ranunculaceae og líkjast mjög sóleyjum. Þær vaxa einkum á norðlægum slóðum og upp til fjalla. Margar blómstra á vorin eða snemmsumars, þó nokkrar, eins og haustsnotra, blómstri síðsumars.

Fjölgun:


Skipting að vori.


Sáning - sáð að vori. Fræ geymist illa svo best er að geyma það í kæli þar til því er sáð.

Fræ rétt hulið og haft við stofuhita (ca. 20°C) fram að spírun. Eftir spírun þarf lægra hitastig og næga birtu til að plöntur verði ekki of teygðar. Ef fræ spírar ekki, getur það þurft kaldörvun í 3-4 vikur, svo aftur stofuhita.


Sáning - sáð að hausti.

Fræ rétt hulið og haft í 2-4 vikur við stofuhita og svo er best að setja sáninguna út fram á vor. Spírar best við 18-20°C, svo best er að taka sáninguna inn þegar fer að hlýna.

Garðaafbrigði sem er hávaxnara og með mun stærri og fallegri blómum en tegundin. Þau eru kremhvít með fjólublárri slikju á neðra borði krónublaðanna. Þrífst best í vel framræstum, næringarríkum jarðvegi í sól eða hálfskugga. Nokkuð harðgerð.

Áttu mynd eða hefurðu reynslu af þessari plöntu?

Þú getur deilt myndum og reynslusögum hér.

bottom of page