top of page

Anemone multifida

Mjólkursnotra

Sóleyjaætt

Ranunculaceae

Hæð

lágvaxin, um 30 cm

Blómlitur

kremhvítur

Blómgun

júní

Lauflitur

dökkgrænn

Birtuskilyrði

sól-hálfskuggi

Jarðvegur

næringarríkur, vel framræstur

pH

súrt - hlutlaust - basískt

Harðgerði

harðgerð

Heimkynni

N-Ameríka

Snotrur, Anemone, tilheyra sóleyjaætt, Ranunculaceae og líkjast mjög sóleyjum. Þær vaxa einkum á norðlægum slóðum og upp til fjalla. Margar blómstra á vorin eða snemmsumars, þó nokkrar, eins og haustsnotra, blómstri síðsumars.

Fjölgun:


Skipting að vori.


Sáning - sáð að vori. Fræ geymist illa svo best er að geyma það í kæli þar til því er sáð.

Fræ rétt hulið og haft við stofuhita (ca. 20°C) fram að spírun. Eftir spírun þarf lægra hitastig og næga birtu til að plöntur verði ekki of teygðar. Ef fræ spírar ekki, getur það þurft kaldörvun í 3-4 vikur, svo aftur stofuhita.


Sáning - sáð að hausti.

Fræ rétt hulið og haft í 2-4 vikur við stofuhita og svo er best að setja sáninguna út fram á vor. Spírar best við 18-20°C, svo best er að taka sáninguna inn þegar fer að hlýna.

Fíngerð planta sem ber frekar smá, kremhvít blóm. Hún er heldur síðri garðplanta en garðaafbrigðin. Þrífst vel í sól eða hálfskugga í næringarríkum, vel framræstum jarðvegi.

Áttu mynd eða hefurðu reynslu af þessari plöntu?

Þú getur deilt myndum og reynslusögum hér.

bottom of page