top of page

Aquilegia flabellata 'Rosea'

Blævatnsberi

Sóleyjaætt

Ranunculaceae

Hæð

lávaxinn, um 15-20 cm

Blómlitur

tvílitur, fölbleikur og kremhvítur sem fölnar í hreinhvítan​

Blómgun

júní

Lauflitur

grænn

Birtuskilyrði

sól - hálfskuggi

Jarðvegur

næringarríkur, vel framræstur

pH

súrt - hlutlaust - basískt

Harðgerði

harðgerður

Heimkynni

tegundin vex villt í Japan og Kóreu

Ættkvíslin Aquilegia, vatnsberar, tilheyrir sóleyjaætt, Ranunculaceae. Þeir eru einnig nefndir sporasóleyjar og er það nafn dregið af hunangssporum sem krónublöðin mynda. Þetta eru harðgerðar plöntur sem kunna best við sig í heldur rökum jarðvegi og skugga part úr degi. Þó eru til fjallaplöntur í þessari ættkvísl sem kjósa að vera sólarmegin í lífinu og vaxa best í vel framræstum jarðvegi.

Fjölgun:


Sáning - sáð að vori

Fræ rétt hulið og haft við stofuhita (ca. 20°C) fram að spírun sem getur verið hæg. Eftir spírun þarf lægra hitastig og næga birtu til að plöntur verði ekki of teygðar.

Mjög smávaxið afbrigði sem er ekki eins harðgert og tegundin. Þarf léttan, næringarríkan jarðveg og sól part úr degi. Sáir sér ekki.

Áttu mynd eða hefurðu reynslu af þessari plöntu?

Þú getur deilt myndum og reynslusögum hér.

bottom of page