top of page

Aquilegia flabellata

Blævatnsberi

Sóleyjaætt

Ranunculaceae

Hæð

lávaxinn, um 25-30 cm

Blómlitur

tvílitur, blár og hvítur

Blómgun

júní

Lauflitur

grænn

Birtuskilyrði

sól - hálfskuggi

Jarðvegur

frekar næringarríkur, rakur

pH

súrt - hlutlaust - basískt

Harðgerði

harðgerður

Heimkynni

Kórea og Japan

Ættkvíslin Aquilegia, vatnsberar, tilheyrir sóleyjaætt, Ranunculaceae. Þeir eru einnig nefndir sporasóleyjar og er það nafn dregið af hunangssporum sem krónublöðin mynda. Þetta eru harðgerðar plöntur sem kunna best við sig í heldur rökum jarðvegi og skugga part úr degi. Þó eru til fjallaplöntur í þessari ættkvísl sem kjósa að vera sólarmegin í lífinu og vaxa best í vel framræstum jarðvegi.

Fjölgun:


Sáning - sáð að vori

Fræ rétt hulið og haft við stofuhita (ca. 20°C) fram að spírun sem getur verið hæg. Eftir spírun þarf lægra hitastig og næga birtu til að plöntur verði ekki of teygðar.

Lágvaxinn vatnsberi sem er harðgerður og nokkuð skuggþolinn. Gerir ekki sérstakar jarðvegskröfur, aðrar en að moldin sé ekki of þétt og blaut. Sáir sér lítið.

Áttu mynd eða hefurðu reynslu af þessari plöntu?

Þú getur deilt myndum og reynslusögum hér.

bottom of page