top of page

Aquilegia 'Rauði Risinn'

Vatnsberi

Sóleyjaætt

Ranunculaceae

Hæð

hávaxinn, um 150 cm

Blómlitur

rauðbleikur

Blómgun

júní-júlí

Lauflitur

grænn

Birtuskilyrði

sól - hálfskuggi

Jarðvegur

vel framræstur, frekar rakur

pH

súrt - hlutlaust - basískt

Harðgerði

harðgerður

Heimkynni

garðaafbrigði

Ættkvíslin Aquilegia, vatnsberar, tilheyrir sóleyjaætt, Ranunculaceae. Þeir eru einnig nefndir sporasóleyjar og er það nafn dregið af hunangssporum sem krónublöðin mynda. Þetta eru harðgerðar plöntur sem kunna best við sig í heldur rökum jarðvegi og skugga part úr degi. Þó eru til fjallaplöntur í þessari ættkvísl sem kjósa að vera sólarmegin í lífinu og vaxa best í vel framræstum jarðvegi.

Fjölgun:


Sáning - sáð að vori.

Fræ varla hulið og haft við stofuhita (ca. 15-20°C) fram að spírun. Eftir spírun þarf lægra hitastig og næga birtu til að plöntur verði ekki of teygðar.

Sjálfsáður blendingur sem kom fram í garði Ólafs B. Guðmundssonar heitins, lyfjafræðings.
Fræ af honum hefur verið á frælista Garðyrkjufélags Íslands um árabil. Sáir sér svolítið. Óvenjulega hávaxinn vatnsberi með einlitum, rauðbleikum blómum.

Áttu mynd eða hefurðu reynslu af þessari plöntu?

Þú getur deilt myndum og reynslusögum hér.

bottom of page