top of page

Aquilegia sp. Blár

Vatnsberi

Sóleyjaætt

Ranunculaceae

Hæð

hávaxinn, um 80 cm

Blómlitur

blár

Blómgun

júní

Lauflitur

grænn

Birtuskilyrði

sól - hálfskuggi

Jarðvegur

vel framræstur, frekar rakur

pH

súrt - hlutlaust - basískt

Harðgerði

harðgerður

Heimkynni

mögulega garðaafbrigði

Ættkvíslin Aquilegia, vatnsberar, tilheyrir sóleyjaætt, Ranunculaceae. Þeir eru einnig nefndir sporasóleyjar og er það nafn dregið af hunangssporum sem krónublöðin mynda. Þetta eru harðgerðar plöntur sem kunna best við sig í heldur rökum jarðvegi og skugga part úr degi. Þó eru til fjallaplöntur í þessari ættkvísl sem kjósa að vera sólarmegin í lífinu og vaxa best í vel framræstum jarðvegi.

Fjölgun:


Sáning - sáð síðvetrar eða snemma vors

Fræ rétt hulið og haft við stofuhita (ca. 20°C) fram að spírun. Ef fræ spírar ekki eftir 4 vikur, er ráðlegt að setja það í kæli í 2-4 vikur og færa það svo aftur í stofuhita. Eftir spírun þarf lægra hitastig og næga birtu til að plöntur verði ekki of teygðar.

Hávaxinn vatnsberi af óþekktum uppruna með bláum blómum. Hann er nokkuð skuggþolinn, en vex líklega best í sól eða hálfskugga. Hann gerir engar sérstakar jarðvegskröfur.

Áttu mynd eða hefurðu reynslu af þessari plöntu?

Þú getur deilt myndum og reynslusögum hér.

bottom of page