top of page

Aquilegia vulgaris 'Petticoats'

Skógarvatnsberi

Sóleyjaætt

Ranunculaceae

Hæð

hávaxinn, um 90 cm

Blómlitur

einlit blóm í blönduðum bleikum og hvítum litum

Blómgun

júní - júlí

Lauflitur

grænn

Birtuskilyrði

sól - hálfskuggi

Jarðvegur

vel framræstur, meðalfrjór

pH

súrt - hlutlaust - basískt

Harðgerði

harðgerður

Heimkynni

garðaafbrigði

Ættkvíslin Aquilegia, vatnsberar, tilheyrir sóleyjaætt, Ranunculaceae. Þeir eru einnig nefndir sporasóleyjar og er það nafn dregið af hunangssporum sem krónublöðin mynda. Þetta eru harðgerðar plöntur sem kunna best við sig í heldur rökum jarðvegi og skugga part úr degi. Þó eru til fjallaplöntur í þessari ættkvísl sem kjósa að vera sólarmegin í lífinu og vaxa best í vel framræstum jarðvegi.

Fjölgun:


Sáning - sáð síðvetrar eða snemma vors

Fræ rétt hulið og haft við stofuhita (ca. 20°C) fram að spírun. Ef fræ spírar ekki eftir 4 vikur, er ráðlegt að setja það í kæli í 2-4 vikur og færa það svo aftur í stofuhita. Eftir spírun þarf lægra hitastig og næga birtu til að plöntur verði ekki of teygðar.

Sort af skógarvatnsbera með fylltum blómum í blönduðum bleikum og hvítum litum. Hann þarf vel framræstan jarðveg en gerir annars litlar jarðvegskröfur. Þrífst best í sól eða hálfskugga. Sáir sér lítillega.

Áttu mynd eða hefurðu reynslu af þessari plöntu?

Þú getur deilt myndum og reynslusögum hér.

bottom of page