top of page

Aquilegia vulgaris var. vervaeneana 'Woodside Variegata'

Skógarvatnsberi

Sóleyjaætt

Ranunculaceae

Hæð

meðalhár, um 50-60 cm

Blómlitur

blandaðir bláir, bleikir og hvítir litir

Blómgun

júní - júlí

Lauflitur

gulgrænt með grænum flekkjum

Birtuskilyrði

sól - hálfskuggi

Jarðvegur

vel framræstur, meðalfrjór

pH

súrt - hlutlaust - basískt

Harðgerði

harðgerður

Heimkynni

garðaafbrigði

Ættkvíslin Aquilegia, vatnsberar, tilheyrir sóleyjaætt, Ranunculaceae. Þeir eru einnig nefndir sporasóleyjar og er það nafn dregið af hunangssporum sem krónublöðin mynda. Þetta eru harðgerðar plöntur sem kunna best við sig í heldur rökum jarðvegi og skugga part úr degi. Þó eru til fjallaplöntur í þessari ættkvísl sem kjósa að vera sólarmegin í lífinu og vaxa best í vel framræstum jarðvegi.

Fjölgun:


Sáning - sáð síðvetrar eða snemma vors

Fræ rétt hulið og haft við stofuhita (ca. 20°C) fram að spírun. Ef fræ spírar ekki eftir 4 vikur, er ráðlegt að setja það í kæli í 2-4 vikur og færa það svo aftur í stofuhita. Eftir spírun þarf lægra hitastig og næga birtu til að plöntur verði ekki of teygðar.

Afbrigði af skógarvatnsbera með gulgrænu laufi með grænum flekkjum. Blómin eru í blönduðum litum, aðallega hvítum, bleikum og bláum litatónum. Hann þarf frekar vel framræstan jarðveg og vex best í sól eða hálfskugga. Harðgerður og sáir sér eitthvað.

Áttu mynd eða hefurðu reynslu af þessari plöntu?

Þú getur deilt myndum og reynslusögum hér.

bottom of page