top of page

Aquilegia vulgaris

Skógarvatnsberi

Sóleyjaætt

Ranunculaceae

Hæð

hávaxinn, um 90-100 cm

Blómlitur

ýmsir fjólubláir og rauðbleikir litatónar

Blómgun

júní - júlí

Lauflitur

grænn

Birtuskilyrði

sól - hálfskuggi

Jarðvegur

vel framræstur, meðalfrjór, rakur

pH

súrt - hlutlaust - basískt

Harðgerði

harðgerður

Heimkynni

Evrópa

Ættkvíslin Aquilegia, vatnsberar, tilheyrir sóleyjaætt, Ranunculaceae. Þeir eru einnig nefndir sporasóleyjar og er það nafn dregið af hunangssporum sem krónublöðin mynda. Þetta eru harðgerðar plöntur sem kunna best við sig í heldur rökum jarðvegi og skugga part úr degi. Þó eru til fjallaplöntur í þessari ættkvísl sem kjósa að vera sólarmegin í lífinu og vaxa best í vel framræstum jarðvegi.

Fjölgun:


Sáning - sáð síðvetrar eða snemma vors

Fræ rétt hulið og haft við stofuhita (ca. 20°C) fram að spírun. Ef fræ spírar ekki eftir 4 vikur, er ráðlegt að setja það í kæli í 2-4 vikur og færa það svo aftur í stofuhita. Eftir spírun þarf lægra hitastig og næga birtu til að plöntur verði ekki of teygðar.

Hávaxinn vatnsberi sem blómstrar lútandi blómum með stuttum, innsveigðum sporum í ýmsum fjólubláum og bláum litbrigðum. Hann sáir sér grimmt, svo það borgar sig að klippa blómstönglana áður en fræið þroskast. Nokkuð skuggþolinn og harðgerður. Gerir ekki sérstakar jarðvegskröfur aðrar en að jarðvegurinn sé ekki vatnssósa.

Áttu mynd eða hefurðu reynslu af þessari plöntu?

Þú getur deilt myndum og reynslusögum hér.

bottom of page