top of page

Aquilegia x hybrida gulur

Garðavatnsberi

Sóleyjaætt

Ranunculaceae

Hæð

hávaxinn, um 80 - 90 cm

Blómlitur

gulur

Blómgun

júní - júlí

Lauflitur

grænn

Birtuskilyrði

sól - hálfskuggi

Jarðvegur

vel framræstur, frjór

pH

súrt - hlutlaust - basískt

Harðgerði

harðgerður

Heimkynni

garðaafbrigði

Ættkvíslin Aquilegia, vatnsberar, tilheyrir sóleyjaætt, Ranunculaceae. Þeir eru einnig nefndir sporasóleyjar og er það nafn dregið af hunangssporum sem krónublöðin mynda. Þetta eru harðgerðar plöntur sem kunna best við sig í heldur rökum jarðvegi og skugga part úr degi. Þó eru til fjallaplöntur í þessari ættkvísl sem kjósa að vera sólarmegin í lífinu og vaxa best í vel framræstum jarðvegi.

Fjölgun:


Sáning - sáð að vori.

Fræ varla hulið og haft við stofuhita (ca. 15-20°C) fram að spírun. Eftir spírun þarf lægra hitastig og næga birtu til að plöntur verði ekki of teygðar.

Mjög fallegt garðaafbrigði með gulum blómum og löngum beinum sporum af ókunnum uppruna. Þrífst best í sól eða hálfskugga í vel framræstum, frjóum jarðvegi.

Áttu mynd eða hefurðu reynslu af þessari plöntu?

Þú getur deilt myndum og reynslusögum hér.

bottom of page