top of page

Armeria maritima 'Splendens'

Geldingahnappur

Gullintoppuætt

Plumbaginaceae

Hæð

lágvaxinn, um 15-20 cm

Blómlitur

dökkbleikur

Blómgun

júní - júlí​

Lauflitur

dökkgrænn

Birtuskilyrði

sól

Jarðvegur

vel framræstur, sendinn

pH

súrt - hlutlaust - basískt

Harðgerði

harðgerður

Heimkynni

garðaafbrigði

Gullintoppur, Armeria, tilheyra gullintoppuætt, Plumbaginaceae. Tegundir ættkvíslarinnar eru mjög líkar og oft erfitt að greina á milli tegunda. Þær einkennast af jarðlægri blaðhvirfingu striklaga laufblaða og blómkollum á blaðlausum stilki. Ein íslensk planta, geldingahnappur, tilheyrir þessari ættkvísl en aðrar tegundir eiga flestar heimkynni við Miðjarðarhafið.

Fjölgun:


Sáning - sáð að vori

Fræ rétt hulið og haft við stofuhita (ca. 20°C) fram að spírun. Spírun getur verið hæg. Eftir spírun þarf lægra hitastig og næga birtu til að plöntur verði ekki of teygðar.

Stórgerð sort af geldingahnappi með dökkbleikum blómum. Verður fallegastur í grófri sandblöndu
sem er 20-30% mold. Þarf sólríkan stað til að þrifast vel.

Áttu mynd eða hefurðu reynslu af þessari plöntu?

Þú getur deilt myndum og reynslusögum hér.

bottom of page