top of page

Aster alpinus 'Goliat'

Fjallastjarna

Körfublómaætt

Asteraceae

Hæð

lágvaxin, um 20-30 cm á hæð

Blómlitur

ljós fjólublár

Blómgun

júlí - ágúst

Lauflitur

grænn

Birtuskilyrði

sól

Jarðvegur

sendinn, frekar rýr

pH

súrt - hlutlaust - basískt

Harðgerði

sæmilega harðgerð, en skammlíf

Heimkynni

tegundin vex villt í Alpafjöllum og öðrum fjöllum í Evrópu

Stjörnufíflar, Aster, tilheyra körfublómaætt, Asteraceae. Heimkynni ættkvíslarinnar eru engi í tempraða beltinu nyrðra, og vex meirihlutinn í Norður-Ameríku. Þeir þrífast best í rökum, frjósömum jarðvegi og kjósa að vera sólarmegin í lífinu. Flestir stjörnufíflar blómgast síðsumars og fram á haust, en þeir sem helst eru ræktaðir hér eru háfjallaplöntur sem blómgast fyrr, í júlí - ágúst.

Fjölgun:


Skipting að vori.


Sáning - sáð að vori.

Fræ rétt hulið og haft við stofuhita (ca. 20°C) fram að spírun. Eftir spírun þarf lægra hitastig og næga birtu til að plöntur verði ekki of teygðar.

Þrífst best í frekar rýrum, sendnum jarðvegi og hentar því best í steinhæð. Tegundin vex villt í fjöllum Evrópu.

Áttu mynd eða hefurðu reynslu af þessari plöntu?

Þú getur deilt myndum og reynslusögum hér.

bottom of page