top of page

Aster puniceus

syn. Symphyotrichum puniceum

Glæsistjarna

Körfublómaætt

Asteraceae

Hæð

hávaxin, um 60-90 cm

Blómlitur

ljós fjólublár

Blómgun

júlí - ágúst

Lauflitur

grænn

Birtuskilyrði

sól - hálfskuggi

Jarðvegur

frekar rakur

pH

súrt - hlutlaust - basískt

Harðgerði

harðgerð

Heimkynni

Austanverð N-Ameríka

Stjörnufíflar, Aster, tilheyra körfublómaætt, Asteraceae. Heimkynni ættkvíslarinnar eru engi í tempraða beltinu nyrðra, og vex meirihlutinn í Norður-Ameríku. Þeir þrífast best í rökum, frjósömum jarðvegi og kjósa að vera sólarmegin í lífinu. Flestir stjörnufíflar blómgast síðsumars og fram á haust, en þeir sem helst eru ræktaðir hér eru háfjallaplöntur sem blómgast fyrr, í júlí - ágúst.

Fjölgun:


Skipting að vori.


Sáning - sáð síðvetrar eða snemma vors

Fræ rétt hulið og haft við stofuhita (ca. 20°C) fram að spírun. Ef fræ spírar ekki eftir 4 vikur, er ráðlegt að setja það í kæli í 2-4 vikur og færa það svo aftur í stofuhita. Eftir spírun þarf lægra hitastig og næga birtu til að plöntur verði ekki of teygðar.

Skriðul planta sem er nokkuð fljót að breiða úr sér. Það þarf að stinga utan af hnausnum árlega til að halda henni í skefjum. Þó þarf að ætla henni nokkuð gott pláss. Þarf stuðning.

Áttu mynd eða hefurðu reynslu af þessari plöntu?

Þú getur deilt myndum og reynslusögum hér.

bottom of page