top of page

Campanula aucheri

Sunnuklukka

Bláklukkuætt

Campanulaceae

Hæð

lágvaxin, um 10 - 15 cm

Blómlitur

fjólublár

Blómgun

júní

Lauflitur

grænn

Birtuskilyrði

sól

Jarðvegur

vel framræstur, blandaður grófum sandi

pH

súrt - hlutlaust - basískt

Harðgerði

þrífst vel, ef frárennslið er gott

Heimkynni

Kákasusfjöll, Tyrkland og N-Íran

Ættkvíslin Campanula, bláklukkur, er stærsta ættkvísl bláklukkuættarinnar, Campanulaceae, með yfir 500 tegundum sem dreifast  um norðurhvel jarðar, flestar við Miðjarðarhaf og austur til Kákasus. Tegundir ættkvíslarinnar eru mjög fjölbreyttar frá lágvöxnum háfjallaplöntum, til stórvaxinna engja og skógarplantna. Tvær tegundir, bláklukka og fjallabláklukka, vaxa villtar á Íslandi.

Fjölgun:


Skipting að vori.


Sáning – sáð síðvetrar.

Fræ ekki hulið og haft við 20°C fram að spírun. Spírar hægt, getur tekið 3 mánuði. Eftir spírun þarf lægra hitastig og næga birtu til að plöntur verði ekki of teygðar.

Falleg steinhæðaplanta sem þarf mjög gott frárennsli.

Áttu mynd eða hefurðu reynslu af þessari plöntu?

Þú getur deilt myndum og reynslusögum hér.

bottom of page