top of page

Campanula cochleariifolia

Smáklukka

Bláklukkuætt

Campanulaceae

Hæð

lágvaxin, um 10 cm

Blómlitur

blár

Blómgun

lok júní - júlí

Lauflitur

grænn

Birtuskilyrði

sól - hálfskuggi

Jarðvegur

vel framræstur

pH

súrt - hlutlaust - basískt

Harðgerði

harðgerð

Heimkynni

fjalllendi í mið-Evrópu, m.a. Alparnir, Pýreneafjöll og Karpatafjöll

Ættkvíslin Campanula, bláklukkur, er stærsta ættkvísl bláklukkuættarinnar, Campanulaceae, með yfir 500 tegundum sem dreifast  um norðurhvel jarðar, flestar við Miðjarðarhaf og austur til Kákasus. Tegundir ættkvíslarinnar eru mjög fjölbreyttar frá lágvöxnum háfjallaplöntum, til stórvaxinna engja og skógarplantna. Tvær tegundir, bláklukka og fjallabláklukka, vaxa villtar á Íslandi.

Fjölgun:


Skipting að vori


Sáning - sáð að vori

Fræ rétt hulið og haft við stofuhita (ca. 20°C) fram að spírun. Eftir spírun þarf lægra hitastig og næga birtu til að plöntur verði ekki of teygðar. 

Falleg, jarðlæg bláklukkutegund sem breiðist hægt út með jarðstönglum. Sé henni plantað í steinhleðslu þarf að reikna með því að útbreiðslusvæði hennar stækki með tímanum.

Áttu mynd eða hefurðu reynslu af þessari plöntu?

Þú getur deilt myndum og reynslusögum hér.

bottom of page