top of page

Campanula latifolia 'Alba'

Risaklukka

Bláklukkuætt

Campanulaceae

Hæð

hávaxin, um 80 - 100 cm

Blómlitur

hvítur

Blómgun

lok júlí - september

Lauflitur

grænn

Birtuskilyrði

sól - hálfskuggi

Jarðvegur

næringarríkur, vel framræstur, frekar rakur

pH

hlutlaust - basískt

Harðgerði

harðgerð

Heimkynni

Evrópa og vestanverð Asía

Ættkvíslin Campanula, bláklukkur, er stærsta ættkvísl bláklukkuættarinnar, Campanulaceae, með yfir 500 tegundum sem dreifast  um norðurhvel jarðar, flestar við Miðjarðarhaf og austur til Kákasus. Tegundir ættkvíslarinnar eru mjög fjölbreyttar frá lágvöxnum háfjallaplöntum, til stórvaxinna engja og skógarplantna. Tvær tegundir, bláklukka og fjallabláklukka, vaxa villtar á Íslandi.

Fjölgun:


Skipting að vori.


Sáning - sáð að vori.

Fræ ekki hulið og haft við stofuhita (ca. 20°C) fram að spírun. Eftir spírun þarf lægra hitastig og næga birtu til að plöntur verði ekki of teygðar.

Hávaxin planta sem þarf ekki stuðning sé hún í góðu skjóli.

Áttu mynd eða hefurðu reynslu af þessari plöntu?

Þú getur deilt myndum og reynslusögum hér.

bottom of page