top of page

Dianthus barbatus 'Mix'

Stúdentadrottning

Hjartagrasaætt

Caryophyllaceae

Hæð

meðalhá, 30 - 40 cm.​

Blómlitur

blandaðir bleikir litir

Blómgun

lok júní - ágúst

Lauflitur

grænn

Birtuskilyrði

sól

Jarðvegur

lífefnaríkur, vel framræstur

pH

hlutlaust - basískt

Harðgerði

harðgerð

Heimkynni

garðaafbrigði

Dianthus, drottningablóm, er stór ættkvísl í hjartagrasaætt, Caryophyllaceae, með um 300 tegundum sem flestar eiga heimkynni við Miðjarðarhafið, norður eftir Evrópu og austur til Asíu. Flestar mynda lága brúska eða breiður og vaxa best í þurrum, grýttum jarðvegi á sólríkum stað og henta því vel í steinhæðir.

Fjölgun:


Sumargræðlingar.

Blómlaus stilkur rifinn frá alveg niður við jörð og stungið í vikurblandaða pottamold. Haldið röku á skýldum stað, ekki í sterkri sól þar til græðlingurinn hefur rótað sig.


Sáning - sáð að vori.

Fræ rétt hulið og haft við stofuhita (ca. 20°C) fram að spírun. Eftir spírun þarf lægra hitastig og næga birtu til að plöntur verði ekki of teygðar.

Fræblanda frá Lord Nelson með fylltum og einföldum blómum í ýmsum bleikum og hvítum litatónum.
Skammær tegund, oft ræktuð sem tvíær eða sumarblóm.

Áttu mynd eða hefurðu reynslu af þessari plöntu?

Þú getur deilt myndum og reynslusögum hér.

bottom of page