top of page

Digitalis purpurea 'Alba'

Fingurbjargarblóm

Græðisúruætt

Plantaginaceae

Hæð

hávaxið, um 80- 110 cm

Blómlitur

hvítur

Blómgun

júlí - ágúst

Lauflitur

grænn

Birtuskilyrði

sól - hálfskuggi

Jarðvegur

frekar vel framræstur, en vex í flestum jarðvegsgerðum

pH

súrt - hlutlaust - basískt

Harðgerði

harðgert

Heimkynni

tegundin vex villt víða um tempraða belti Evrópu

Fingurbjargarblóm, Digitalis, er ættkvísl um 20 tegunda sem áður var flokkuð í grímublómaætt en hefur nú verið færð undir græðisúruætt, Plantaginaceae.  Þetta eru nokkuð hávaxnar plöntur með laufblaðahvirfingu og fingurbjargarlaga blóm í háum klösum. Þær eru mjög eitraðar. Heimkynni ættkvíslarinnar eru í V- og SV-Evrópu, V- og Mið-Asíu, Eyjaálfu og NV-Afríku.

Fjölgun:


Sáning - sáð að vori

Fræ rétt hulið og haft við stofuhita (ca. 20°C) fram að spírun. Eftir spírun þarf lægra hitastig og næga birtu til að plöntur verði ekki of teygðar.

Eða sáð beint út í beð. Þá þarf að merkja staðinn vel svo fræplönturnar fái að vaxa í friði.

Tvíært. Ekki eins duglegt að sá sér og tegundin. Mjög eitruð planta.

Áttu mynd eða hefurðu reynslu af þessari plöntu?

Þú getur deilt myndum og reynslusögum hér.

bottom of page