top of page

Erodium manescavii

Rauðhegranef

Blágresisætt

Geraniaceae

Hæð

meðalhátt, 30 - 40 cm

Blómlitur

dökkbleikur

Blómgun

mest allt sumar frá júnílokum fram að frosti

Lauflitur

grænn

Birtuskilyrði

sól

Jarðvegur

vel framræstur, vikurblandaður

pH

hlutlaust - basískt

Harðgerði

virðist þokkalega harðgert

Heimkynni

Pýreneafjöll

Hegranef, Erodium, er ættkvísl í blágresisætt, Geraniaceae. Þær tegundir sem eru ræktaðar hér eiga heimkynni í sunnanverðri Evrópu og eru því heldur viðkvæmar. Þær þurfa gljúpan jarðveg og sólríkan stað og eiga því best heima í steinhæðum.

Fjölgun:


Skipting að vori.


Sáning - sáð síðvetrar.

Fræ rétt hulið og haft við stofuhita (ca. 20°C) fram að spírun. Spírun getur tekið 2-3 mánuði. Eftir spírun þarf lægra hitastig og næga birtu til að plöntur verði ekki of teygðar.

Hefur reynst nokkuð harðgert. Þrífst best í vel framræstum jarðvegi.

Áttu mynd eða hefurðu reynslu af þessari plöntu?

Þú getur deilt myndum og reynslusögum hér.

bottom of page