top of page

Geranium cinereum ssp. subcaulescens

sh. Geranium subcaulescens

Roðablágresi

Blágresisætt

Geraniaceae

Hæð

lágvaxið, um 20 - 25 cm

Blómlitur

dökkbleikur

Blómgun

júní - september

Lauflitur

grænn

Birtuskilyrði

sól

Jarðvegur

vel framræstur

pH

súrt - hlutlaust - basískt

Harðgerði

nokkuð harðgert ef frárennsli er gott

Heimkynni

Ítalía, Balkanskagi og Tyrkland

Blágresi, Geranium, er nokkuð stór ættkvísl í blágresisætt, Geraniaceae, sem inniheldur mikinn fjölda úrvals garðplantna. Útbreiðslusvæði ættkvíslarinnar nær yfir tempruðu beltin, með mestan tegundafjölda við austanvert Miðjarðarhafssvæðið.

Fjölgun: 


Skipting að vori.


Sáning - sáð síðvetrar.

Fræ hulið og haft úti fram að spírun. Spírar best við 10°C.

Verður þéttara og fallegra í rýrum jarðvegi. Þarf gott frárennsli, þolir illa vetrarbleytu.

Áttu mynd eða hefurðu reynslu af þessari plöntu?

Þú getur deilt myndum og reynslusögum hér.

bottom of page