top of page

Geranium macrorrhizum 'Album'

Ilmgresi

Blágresisætt

Geraniaceae

Hæð

meðalhátt, um 30 - 40 cm

Blómlitur

hvítur

Blómgun

júní - júlí

Lauflitur

grænn

Birtuskilyrði

sól - skuggi

Jarðvegur

vel framræstur, rakur, þolir flestar jarðvegsgerðir

pH

súrt - hlutlaust - basískt

Harðgerði

harðgert

Heimkynni

tegundin vex villt í Alpafjöllum og á Balkanskaga

Blágresi, Geranium, er nokkuð stór ættkvísl í blágresisætt, Geraniaceae, sem inniheldur mikinn fjölda úrvals garðplantna. Útbreiðslusvæði ættkvíslarinnar nær yfir tempruðu beltin, með mestan tegundafjölda við austanvert Miðjarðarhafssvæðið.

Fjölgun:


Skipting að vori.


Sáning - sáð að hausti eða vetri

Fræ hulið og haft úti fram að spírun.

​Harðgert og skuggþolið.

Áttu mynd eða hefurðu reynslu af þessari plöntu?

Þú getur deilt myndum og reynslusögum hér.

bottom of page