top of page

Geranium orientali-tibeticum

Tíbetblágresi

Blágresisætt

Geraniaceae

Hæð

lágvaxið, um 10 - 15 cm

Blómlitur

rósrauður​

Blómgun

júlí

Lauflitur

grænn með ljósum flekkjum og rauðum blaðjöðrum

Birtuskilyrði

sól

Jarðvegur

vel framræstur, vikurblandaður

pH

súrt - hlutlaust - basískt

Harðgerði

sæmilega harðgert ef frárennsli er gott

Heimkynni

Tíbet

Blágresi, Geranium, er nokkuð stór ættkvísl í blágresisætt, Geraniaceae, sem inniheldur mikinn fjölda úrvals garðplantna. Útbreiðslusvæði ættkvíslarinnar nær yfir tempruðu beltin, með mestan tegundafjölda við austanvert Miðjarðarhafssvæðið.

Fjölgun:


Skipting að vori.


Sáning - sáð að hausti eða vetri.

Fræ hulið og haft úti fram að spírun.

Steinhæðaplanta. Þarf rýran, vel framræstan jarðveg.

Áttu mynd eða hefurðu reynslu af þessari plöntu?

Þú getur deilt myndum og reynslusögum hér.

bottom of page