top of page

Geranium palustre

Mýrablágresi

Blágresisætt

Geraniaceae

Hæð

meðalhátt, um 30 - 40 cm

Blómlitur

skærbleikur

Blómgun

júlí - ágúst

Lauflitur

grænn

Birtuskilyrði

sól - hálfskuggi

Jarðvegur

venjuleg garðmold, þolir flestar jarðvegsgerðir

pH

súrt - hlutlaust - basískt

Harðgerði

harðgert

Heimkynni

Evrópa

Blágresi, Geranium, er nokkuð stór ættkvísl í blágresisætt, Geraniaceae, sem inniheldur mikinn fjölda úrvals garðplantna. Útbreiðslusvæði ættkvíslarinnar nær yfir tempruðu beltin, með mestan tegundafjölda við austanvert Miðjarðarhafssvæðið.

Fjölgun:


Skipting að vori.


Sáning - sáð að hausti eða vetri.

Fræ hulið og haft úti fram að spírun.

Harðgert og auðræktað. Getur sáð sér lítillega.

Áttu mynd eða hefurðu reynslu af þessari plöntu?

Þú getur deilt myndum og reynslusögum hér.

bottom of page