top of page

Geranium phaeum

Brúngresi

Blágresisætt

Geraniaceae

Hæð

meðalhátt, um 50 - 60 cm​

Blómlitur

vínrauður

Blómgun

júní - júlí

Lauflitur

grænn með rauðbrúnum blettum

Birtuskilyrði

sól - hálfskuggi

Jarðvegur

vel framræstur, frekar næringarríkur, þolir flestar jarðvegsgerðir

pH

súrt - hlutlaust - basískt

Harðgerði

harðgert

Heimkynni

Evrópa

Blágresi, Geranium, er nokkuð stór ættkvísl í blágresisætt, Geraniaceae, sem inniheldur mikinn fjölda úrvals garðplantna. Útbreiðslusvæði ættkvíslarinnar nær yfir tempruðu beltin, með mestan tegundafjölda við austanvert Miðjarðarhafssvæðið.

Fjölgun:


Skipting að vori.


Sáning - sáð að hausti eða vetri.

Fræ hulið og haft úti fram að spírun.

Sáir sér svolítið, best að klippa blómstöngla að blómgun lokinni.

Áttu mynd eða hefurðu reynslu af þessari plöntu?

Þú getur deilt myndum og reynslusögum hér.

bottom of page