top of page

Geranium sanguineum 'Elsbeth'

Blóðgresi

Blágresisætt

Geraniaceae

Hæð

lágvaxið, um 10 - 15 cm

Blómlitur

fjólurauður

Blómgun

ágúst - september

Lauflitur

grænn

Birtuskilyrði

sól

Jarðvegur

vel framræstur

pH

súrt - hlutlaust - basískt

Harðgerði

þokkalega harðgert

Heimkynni

Evrópa og tempraða belti Asíu

Blágresi, Geranium, er nokkuð stór ættkvísl í blágresisætt, Geraniaceae, sem inniheldur mikinn fjölda úrvals garðplantna. Útbreiðslusvæði ættkvíslarinnar nær yfir tempruðu beltin, með mestan tegundafjölda við austanvert Miðjarðarhafssvæðið.

Fjölgun:


Skipting að vori.


Sáning - sáð að hausti eða vetri.

Fræ hulið og haft úti fram að spírun.

​Mjög smávaxið afbrigði af blóðgresi, þarf að passa að það verði ekki undir gróskumeiri plöntum.

Áttu mynd eða hefurðu reynslu af þessari plöntu?

Þú getur deilt myndum og reynslusögum hér.

bottom of page