top of page

Geranium sylvaticum 'Violetta'

Blágresi

Blágresisætt

Geraniaceae

Hæð

meðalhátt, 40 - 50 cm

Blómlitur

bláfjólublár

Blómgun

júní

Lauflitur

grænn

Birtuskilyrði

sól - hálfskuggi

Jarðvegur

vel framræstur, rakur

pH

súrt - hlutlaust - basískt

Harðgerði

harðgert

Heimkynni

laufskógar í Evrópu

Blágresi, Geranium, er nokkuð stór ættkvísl í blágresisætt, Geraniaceae, sem inniheldur mikinn fjölda úrvals garðplantna. Útbreiðslusvæði ættkvíslarinnar nær yfir tempruðu beltin, með mestan tegundafjölda við austanvert Miðjarðarhafssvæðið.

Fjölgun:


Skipting að vori.


Sáning - sáð að hausti eða vetri.

Fræ hulið og haft úti fram að spírun.

Íslensk tegund, algeng um allt land.

Áttu mynd eða hefurðu reynslu af þessari plöntu?

Þú getur deilt myndum og reynslusögum hér.

bottom of page