top of page

Geranium tuberosum

Hnúðblágresi

Blágresisætt

Geraniaceae

Hæð

meðalhátt, 40 - 50 cm

Blómlitur

fjólublár

Blómgun

júní

Lauflitur

grænn

Birtuskilyrði

sól - hálfskuggi

Jarðvegur

vel framræstur, frekar rakur

pH

súrt - hlutlaust - basískt

Harðgerði

nokkuð harðgert

Heimkynni

Miðjarðarhaf

Blágresi, Geranium, er nokkuð stór ættkvísl í blágresisætt, Geraniaceae, sem inniheldur mikinn fjölda úrvals garðplantna. Útbreiðslusvæði ættkvíslarinnar nær yfir tempruðu beltin, með mestan tegundafjölda við austanvert Miðjarðarhafssvæðið.

Fjölgun:


Skipting að vori.


Sáning - sáð að hausti eða vetri.

Fræ hulið og haft úti fram að spírun.

Myndar breiðu sem visnar eftir blómgun. Nokkuð harðgert, en þarf rétt skilyrði til að þrífast vel.

Áttu mynd eða hefurðu reynslu af þessari plöntu?

Þú getur deilt myndum og reynslusögum hér.

bottom of page