top of page

Geranium viscosissimum

Sléttublágresi

Blágresisætt

Geraniaceae

Hæð

meðalhátt, um 30 - 40 cm

Blómlitur

rauðfjólublár

Blómgun

júní - júlí

Lauflitur

grænn

Birtuskilyrði

sól - hálfskuggi

Jarðvegur

vel framræstur, lífefnaríkur

pH

súrt - hlutlaust

Harðgerði

miðlungs harðgert

Heimkynni

N-Ameríka

Blágresi, Geranium, er nokkuð stór ættkvísl í blágresisætt, Geraniaceae, sem inniheldur mikinn fjölda úrvals garðplantna. Útbreiðslusvæði ættkvíslarinnar nær yfir tempruðu beltin, með mestan tegundafjölda við austanvert Miðjarðarhafssvæðið.

Fjölgun:


Skipting að vori.


Sáning - sáð að hausti eða vetri.

Fræ hulið og haft úti fram að spírun.

Þarf góð skilyrði, sól og vel framræstan jarðveg. Þarf stuðning.

Áttu mynd eða hefurðu reynslu af þessari plöntu?

Þú getur deilt myndum og reynslusögum hér.

bottom of page