top of page

Geranium wallichianum 'Buxton's Blue'

Steinablágresi

Blágresisætt

Geraniaceae

Hæð

lágvaxið, um 10 - 20 cm

Blómlitur

blár

Blómgun

lok júlí - september

Lauflitur

grænn

Birtuskilyrði

sól - hálfskuggi

Jarðvegur

vel framræstur, næringarríkur, lífefnaríkur

pH

súrt - hlutlaust - basískt

Harðgerði

miðlungs harðgert

Heimkynni

tegundin vex villt í Himalajafjöllum

Blágresi, Geranium, er nokkuð stór ættkvísl í blágresisætt, Geraniaceae, sem inniheldur mikinn fjölda úrvals garðplantna. Útbreiðslusvæði ættkvíslarinnar nær yfir tempruðu beltin, með mestan tegundafjölda við austanvert Miðjarðarhafssvæðið.

Fjölgun:


Skipting að vori.


Sáning - sáð að hausti eða vetri.

Fræ hulið og haft úti fram að spírun.

Þarf góð vaxtarskilyrði, sól og vel framræstan jarðveg.

Áttu mynd eða hefurðu reynslu af þessari plöntu?

Þú getur deilt myndum og reynslusögum hér.

bottom of page