top of page

Geranium x cantabrigiense

Skrúðblágresi

Blágresisætt

Geraniaceae

Hæð

lágvaxið, um 20 - 25 cm

Blómlitur

hvítur

Blómgun

júlí - september

Lauflitur

grænn

Birtuskilyrði

sól - skuggi

Jarðvegur

vel framræstur, frekar rakur, lífefnaríkur

pH

súrt - hlutlaust - basískt

Harðgerði

harðgert

Heimkynni

garðaafbrigði

Blágresi, Geranium, er nokkuð stór ættkvísl í blágresisætt, Geraniaceae, sem inniheldur mikinn fjölda úrvals garðplantna. Útbreiðslusvæði ættkvíslarinnar nær yfir tempruðu beltin, með mestan tegundafjölda við austanvert Miðjarðarhafssvæðið.

Fjölgun:


Skipting að vori.


Rótargræðlingar að vori.


Sáning - sáð síðvetrar.

Fræ hulið og haft úti fram að spírun.

Ágæt þekjuplanta, breiðir úr sér með hóflegum hraða. Blendingur milli ilmgresis og dalmatíublágresis. Skuggþolið.

Áttu mynd eða hefurðu reynslu af þessari plöntu?

Þú getur deilt myndum og reynslusögum hér.

bottom of page