top of page

Iris variegata

Trúðaíris

Sverðliljuætt

Iridaceae

Hæð

meðalhá, um 30 - 40 cm

Blómlitur

gulur og brúnn​

Blómgun

lok júní - júlí

Lauflitur

grænn

Birtuskilyrði

sól

Jarðvegur

frjór, vel framræstur, vikur eða malarblandaður

pH

súrt - hlutlaust - basískt

Harðgerði

þokkalega harðgerð ef frárennsli er nægt

Heimkynni

Mið-Evrópa

Sverðliljur, Iris, er stór ættkvísl hátt í 300 tegunda í sverðliljuætt, Iridaceae. Orðið iris er úr grísku og merkir regnbogi og vísar í litrík blóm ættkvíslarinnar. Nær allar tegundir vaxa um tempraða belti norðurhvels við mjög breytileg skilyrði, frá þurru fjallendi, til engja og mýra.

Fjölgun:


Skipting að vori.


Sáning - sáð að hausti eða vetri

Það getur flýtt fyrir spírun að leggja fræ í bleyti í heitt vatn og láta liggja í sólarhring. Fræ síðan hulið og haft úti fram að spírun. Þarf 2-3 mánaða kuldaskeið.

Þarf næringarríkan, en vel framræstan jarðveg. Jarðstönglar fúna ef moldin er of blaut og klesst. Treg til að blómstra.

Áttu mynd eða hefurðu reynslu af þessari plöntu?

Þú getur deilt myndum og reynslusögum hér.

bottom of page