top of page

Lilium bulbiferum

Eldlilja

Liljuætt

Liliaceae

Hæð

hávaxin, um 60 cm

Blómlitur

appelsínugulur

Blómgun

júlí - ágúst

Lauflitur

grænn

Birtuskilyrði

sól

Jarðvegur

frjór, lífefnaríkur, vel framræstur, helst kalkríkur

pH

súrt - hlutlaust - basískt

Harðgerði

harðgerð

Heimkynni

Evrópa

Liljur, Lilium, er stór ættkvísl í liljuætt, Liliaceae, sem vex um nyrðra tempraða beltið, flestar í Asíu og N-Ameríku, en nokkrar í Evrópu. Þetta eru yfirleitt hávaxnar plöntur með stórum, litsterkum blómum í öllum litum regnabogans að bláum undanskildum. Mikill fjöldi yrkja er ræktaður í görðum.

Fjölgun:


Laukar að vori.


Æxlilaukar (smáir laukar sem myndast í blaðöxlum) síðsumars.


Skipting að vori.

Þarf næringarríka mold og sólríkan vaxtarstað. Harðgerð.

Áttu mynd eða hefurðu reynslu af þessari plöntu?

Þú getur deilt myndum og reynslusögum hér.

bottom of page