top of page

Lilium 'Honeymoon'

Austurlanda - trompetliljublendingur

Skrautlilja

Liljuætt

Liliaceae

Hæð

mjög hávaxin, 120 - 150 cm, þarf stuðning

Blómlitur

ljósgulur

Blómgun

ágúst - september

Lauflitur

grænn

Birtuskilyrði

sól

Jarðvegur

frjór, lífefnaríkur, vel framræstur

pH

súrt - hlutlaust - basískt

Harðgerði

þarf sólríkan, hlýjan vaxtarstað

Heimkynni

garðaafbrigði

Liljur, Lilium, er stór ættkvísl í liljuætt, Liliaceae, sem vex um nyrðra tempraða beltið, flestar í Asíu og N-Ameríku, en nokkrar í Evrópu. Þetta eru yfirleitt hávaxnar plöntur með stórum, litsterkum blómum í öllum litum regnabogans að bláum undanskildum. Mikill fjöldi yrkja er ræktaður í görðum.

Fjölgun:


Laukar að vori.

Mjög hávaxin, þarf stuðning. Þarf sólríkan stað og næringarríka mold.

Áttu mynd eða hefurðu reynslu af þessari plöntu?

Þú getur deilt myndum og reynslusögum hér.

bottom of page