top of page

Penstemon crandallii

Lággríma

Græðisúruætt

Plantaginaceae

Hæð

jarðlæg, undir 5 cm

Blómlitur

ljósblár

Blómgun

miðjan júní

Lauflitur

dökkgrænn

Birtuskilyrði

sól

Jarðvegur

vikur/malarblandaður, mjög vel framræstur​

pH

súrt - hlutlaust - basískt

Harðgerði

viðkvæm fyrir vetrarbleytu, þrífst best í góðum halla​

Heimkynni

Klettafjöll Norður-Ameríku

Grímur, Penstemon, er ættkvísl sem áður tilheyrði grímublómaætt (Scrophulareaceae) en hefur nú verið flutt í græðisúruætt, Plantaginaceae.  Þetta er stór ættkvísl með heimkynni í N-Ameríku. Þetta eru yfirleitt lágvaxnar jurtir eða hálfrunnar með óreglulega löguðum blómum með langri pípukrónu. Þær eru almennt sólelskar og henta margar vel í steinhæðir.​

Fjölgun:


Græðlingar.


Sáning - sáð að hausti eða vetri.

Fræ rétt hulið og haft úti fram að spírun.

Jarðlæg fjallaplanta sem þarf mjög sólríkan stað. Viðkvæm fyrir vetrarbleytu. Þrífst best í góðum halla
í vel framræstum jarðvegi.

Áttu mynd eða hefurðu reynslu af þessari plöntu?

Þú getur deilt myndum og reynslusögum hér.

bottom of page