top of page

Penstemon strictus

Bjöllugríma

Græðisúruætt

Plantaginaceae

Hæð

meðalhá, 30-45 cm​

Blómlitur

fjólublár - bláfjólublár

Blómgun

ágúst

Lauflitur

grænn

Birtuskilyrði

sól

Jarðvegur

vel framræstur

pH

súrt - hlutlaust - basískt

Harðgerði

frekar viðkvæm

Heimkynni

Klettafjöll

Grímur, Penstemon, er ættkvísl sem áður tilheyrði grímublómaætt (Scrophulareaceae) en hefur nú verið flutt í græðisúruætt, Plantaginaceae.  Þetta er stór ættkvísl með heimkynni í N-Ameríku. Þetta eru yfirleitt lágvaxnar jurtir eða hálfrunnar með óreglulega löguðum blómum með langri pípukrónu. Þær eru almennt sólelskar og henta margar vel í steinhæðir.​

Fjölgun:


Skipting að vori.


Sáning - sáð að hausti eða vetri.

Fræ rétt hulið og haft úti fram á vor, eða a.m.k. í kæli í 2-3 mánuði og tekið svo inn fyrir spírun.

Þarf vel framræstan jarðveg og sólríkan stað. Þurrkþolin.

Áttu mynd eða hefurðu reynslu af þessari plöntu?

Þú getur deilt myndum og reynslusögum hér.

bottom of page