top of page

Primula capitata 'Noverna Deep Blue'

Höfuðlykill

Maríulykilsætt

Primulaceae

Hæð

lágvaxinn, um 15 - 20 cm

Blómlitur

fjólublár

Blómgun

ágúst

Lauflitur

grænn

Birtuskilyrði

sól

Jarðvegur

vel framræstur, blandaður vikri eða grófum sandi

pH

súrt - hlutlaust

Harðgerði

viðkvæmur

Heimkynni

tegundin vex villt í SA-Tíbet og Bútan

Maríulyklar, Primula, er geysistór ættkvísl um 500 tegunda í maríulykilsætt, Primulaceae. Tegundir ættkvíslarinnar dreifast víða, en mestur tegundafjöldi, um helmingur, vex í Himalajafjöllum. Þær vaxa því við breytileg skilyrði, sumar eru úrvals steinhæðaplöntur, aðrar kunna vel við sig í djúpum, frjóum jarðvegi og skugga part úr degi. Flestar eiga það þó sameiginlegt að þola illa þurrk.

Fjölgun:


Skipting að vori eða hausti.


Sáning - sáð síðvetrar eða að vori.

Fræ ekki hulið og haft við stofuhita fram að spírun.

Viðkvæmur. Getur mögulega lifað með góðu vetrarskýli, en verður yfirleitt skammlífur.

Áttu mynd eða hefurðu reynslu af þessari plöntu?

Þú getur deilt myndum og reynslusögum hér.

bottom of page