top of page

Primula cockburniana

Iðunnarlykill

Maríulykilsætt

Primulaceae

Hæð

lágvaxinn, um 20 - 30 cm

Blómlitur

appelsínugulur

Blómgun

júní - júlí

Lauflitur

grænn

Birtuskilyrði

sól

Jarðvegur

vel framræstur, rakur

pH

súrt - hlutlaust

Harðgerði

frekar skammlífur

Heimkynni

Kína, Himalajafjöll​

Maríulyklar, Primula, er geysistór ættkvísl um 500 tegunda í maríulykilsætt, Primulaceae. Tegundir ættkvíslarinnar dreifast víða, en mestur tegundafjöldi, um helmingur, vex í Himalajafjöllum. Þær vaxa því við breytileg skilyrði, sumar eru úrvals steinhæðaplöntur, aðrar kunna vel við sig í djúpum, frjóum jarðvegi og skugga part úr degi. Flestar eiga það þó sameiginlegt að þola illa þurrk.

Fjölgun:


Skipting að vori eða hausti.


Sáning - sáð síðvetrar eða að vori.

Fræ ekki hulið og haft við stofuhita fram að spírun.

Frekar viðkvæmur. Getur lifað nokkur ár með góðu vetrarskýli, en verður frekar skammlífur

Áttu mynd eða hefurðu reynslu af þessari plöntu?

Þú getur deilt myndum og reynslusögum hér.

bottom of page