top of page

Primula florindae 'Red Shades'

Friggjarlykill

Maríulykilsætt

Primulaceae

Hæð

meðalhár, 40 - 60 cm

Blómlitur

rauðir litatónar

Blómgun

júlí - ágúst

Lauflitur

grænn

Birtuskilyrði

sól - hálfskuggi

Jarðvegur

rakur

pH

súrt - hlutlaust

Harðgerði

harðgerður

Heimkynni

garðaafbrigði, tegundin vex villt við árbakka í SA-Tíbet

Maríulyklar, Primula, er geysistór ættkvísl um 500 tegunda í maríulykilsætt, Primulaceae. Tegundir ættkvíslarinnar dreifast víða, en mestur tegundafjöldi, um helmingur, vex í Himalajafjöllum. Þær vaxa því við breytileg skilyrði, sumar eru úrvals steinhæðaplöntur, aðrar kunna vel við sig í djúpum, frjóum jarðvegi og skugga part úr degi. Flestar eiga það þó sameiginlegt að þola illa þurrk.

Fjölgun:


Skipting að vori eða hausti.


Sáning - sáð síðvetrar eða að vori.

Fræ ekki hulið og haft við stofuhita fram að spírun. Ef fræið spírar ekki á 1-2 mánuðum, má kæla það í mánuð og hafa það svo aftur við stofuhita fram að spírun.



Harðgerður, sáir sér svolítið.

Áttu mynd eða hefurðu reynslu af þessari plöntu?

Þú getur deilt myndum og reynslusögum hér.

bottom of page