top of page

Primula ioessa

Klukkulykill

Maríulykilsætt

Primulaceae

Hæð

lágvaxinn, 15 - 20 cm

Blómlitur

lillablár

Blómgun

júní

Lauflitur

grænn

Birtuskilyrði

sól - hálfskuggi

Jarðvegur

frjór, vel framræstur, frekar rakur

pH

súrt - hlutlaust

Harðgerði

nokkuð harðgerður, en verður yfirleitt frekar skammlífur

Heimkynni

rök fjallaengi í Himalajafjöllum​

Maríulyklar, Primula, er geysistór ættkvísl um 500 tegunda í maríulykilsætt, Primulaceae. Tegundir ættkvíslarinnar dreifast víða, en mestur tegundafjöldi, um helmingur, vex í Himalajafjöllum. Þær vaxa því við breytileg skilyrði, sumar eru úrvals steinhæðaplöntur, aðrar kunna vel við sig í djúpum, frjóum jarðvegi og skugga part úr degi. Flestar eiga það þó sameiginlegt að þola illa þurrk.

Fjölgun:


Skipting að vori eða hausti.


Sáning - sáð að hausti eða síðvetrar.

Fræ ekki hulið og haft úti fram að spírun.

Þokkalega harðgerður, en yfirleitt frekar skammlífur.

Áttu mynd eða hefurðu reynslu af þessari plöntu?

Þú getur deilt myndum og reynslusögum hér.

bottom of page