top of page

Primula juliae

Júlíulykill

Maríulykilsætt

Primulaceae

Hæð

jarðlægur, um 5 cm​

Blómlitur

rauðfjólublár

Blómgun

apríl-maí

Lauflitur

grænn

Birtuskilyrði

sól - hálfskuggi

Jarðvegur

frjór, vel framræstur, frekar rakur

pH

súrt - hlutlaust

Harðgerði

nokkuð harðgerður

Heimkynni

Kákasusfjöll

Maríulyklar, Primula, er geysistór ættkvísl um 500 tegunda í maríulykilsætt, Primulaceae. Tegundir ættkvíslarinnar dreifast víða, en mestur tegundafjöldi, um helmingur, vex í Himalajafjöllum. Þær vaxa því við breytileg skilyrði, sumar eru úrvals steinhæðaplöntur, aðrar kunna vel við sig í djúpum, frjóum jarðvegi og skugga part úr degi. Flestar eiga það þó sameiginlegt að þola illa þurrk.

Fjölgun:


Skipting að vori eða hausti.


Sáning - sáð að hausti eða síðvetrar.

Fræ ekki hulið og haft úti fram að spírun.

Þokkalega harðgerður, en verður ekki mjög gróskumikill nema jarðvegsskilyrði séu góð.

Áttu mynd eða hefurðu reynslu af þessari plöntu?

Þú getur deilt myndum og reynslusögum hér.

bottom of page