top of page

Primula scandinavica

Dofralykill

Maríulykilsætt

Primulaceae

Hæð

lágvaxinn, 5 - 10 cm​

Blómlitur

fjólublár

Blómgun

maí - júní

Lauflitur

grænn

Birtuskilyrði

sól

Jarðvegur

vel framræstur jarðvegur, kalkríkur

pH

hlutlaust - basískt

Harðgerði

þokkalega harðgerður við rétt skilyrði

Heimkynni

Noregur og Svíþjóð

Maríulyklar, Primula, er geysistór ættkvísl um 500 tegunda í maríulykilsætt, Primulaceae. Tegundir ættkvíslarinnar dreifast víða, en mestur tegundafjöldi, um helmingur, vex í Himalajafjöllum. Þær vaxa því við breytileg skilyrði, sumar eru úrvals steinhæðaplöntur, aðrar kunna vel við sig í djúpum, frjóum jarðvegi og skugga part úr degi. Flestar eiga það þó sameiginlegt að þola illa þurrk.

Fjölgun:


Skipting að vori eða hausti.


Sáning - sáð síðvetrar.

Fræ ekki hulið og haft við stofuhita fram að spírun. Ef fræ hefur ekki spírað eftir mánuð, gæti hjálpað að kæla fræið í 2-4 vikur og hafa það svo aftur við stofuhita fram að spírun.

Skammlíf fjallaplanta sem þarf gott frárennsli.

Áttu mynd eða hefurðu reynslu af þessari plöntu?

Þú getur deilt myndum og reynslusögum hér.

bottom of page