top of page

Primula sikkimensis

Kínalykill

Maríulykilsætt

Primulaceae

Hæð

meðalhár, 30-60 cm

Blómlitur

ljósgulur

Blómgun

júní

Lauflitur

grænn

Birtuskilyrði

sól - hálfskuggi

Jarðvegur

frjór, rakur, lífefnaríkur

pH

aðeins súrt - hlutlaust

Harðgerði

harðgerður

Heimkynni

Kína og Nepal

Maríulyklar, Primula, er geysistór ættkvísl um 500 tegunda í maríulykilsætt, Primulaceae. Tegundir ættkvíslarinnar dreifast víða, en mestur tegundafjöldi, um helmingur, vex í Himalajafjöllum. Þær vaxa því við breytileg skilyrði, sumar eru úrvals steinhæðaplöntur, aðrar kunna vel við sig í djúpum, frjóum jarðvegi og skugga part úr degi. Flestar eiga það þó sameiginlegt að þola illa þurrk.

Fjölgun:


Skipting að vori eða hausti.


Sáning - sáð að hausti eða síðvetrar.

Fræ ekki hulið og haft úti fram að spírun.

Harðgerð og auðræktuð planta sem setur mikinn svip á garðinn í júní.

Áttu mynd eða hefurðu reynslu af þessari plöntu?

Þú getur deilt myndum og reynslusögum hér.

bottom of page