top of page

Primula 'Wharfedale Hybrids'

Maríulykilsætt

Primulaceae

Hæð

lágvaxinn, 5 - 10 cm​

Blómlitur

hvítur, bleikur eða fjólublár

Blómgun

maí

Lauflitur

grænn

Birtuskilyrði

sól

Jarðvegur

vel framræstur, lífefnaríkur

pH

súrt - hlutlaust - basískt

Harðgerði

þokkalega harðgerður

Heimkynni

garðablendingar

Maríulyklar, Primula, er geysistór ættkvísl um 500 tegunda í maríulykilsætt, Primulaceae. Tegundir ættkvíslarinnar dreifast víða, en mestur tegundafjöldi, um helmingur, vex í Himalajafjöllum. Þær vaxa því við breytileg skilyrði, sumar eru úrvals steinhæðaplöntur, aðrar kunna vel við sig í djúpum, frjóum jarðvegi og skugga part úr degi. Flestar eiga það þó sameiginlegt að þola illa þurrk.

Fjölgun:


Skipting að vori eða hausti.


Sáning - sáð síðvetrar eða að vori.

Fræ ekki hulið og haft við stofuhita fram að spírun.

Þarf mjög gott frárennsli. Fræplöntur af fræi merktu 'Wharfdale Village' í ýmsum hvítum, bleikum og fjólubláum litatónum.

Áttu mynd eða hefurðu reynslu af þessari plöntu?

Þú getur deilt myndum og reynslusögum hér.

bottom of page